Stöndum vörð um aldurstakmörk

Nútímalegt aldursvottunarkerfi fyrir ábyrga verslun og þjónustu með áherslu á persónuvernd viðskiptavina.

Ábyrg verslun kiosk

Aldursvottun í vasanum

Fáðu þitt stafræna aldursskírteini beint í símaveskið þér að kostnaðarlausu. Einfalt, öruggt og alltaf tilbúið þegar þú þarft á því að halda.

Einfalt í notkun

Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum og þú færð stafrænt aldursskírteini beint í Apple eða Google Wallet

Hraðvirkt

Staðfestu lágmarksaldur með rafrænum hætti.

Persónuvernd

Þínar persónuupplýsingar eru dulkóðaðar og koma ekki fram í viðskiptunum, aðeins upplýsingar um að þú uppfyllir lágmarksaldur.

Ábyrg verslun app

Hvernig virkar þetta?

Nafnlaus framkvæmd! Verslanir sjá ekki hver þú ert heldur fá aðeins staðfestingu á lágmarksaldri.

1

Beiðni um staðfestingu á lágmarksaldri

Aldursvottunarkerfi eða starfsmaður biður um staðfestingu á lágmarksaldri við kaup á vöru eða aðgengi að þjónustu sem krefst lágmarksaldur.

2

Viðskiptavinur staðfestir aldur

Viðskiptavinur opnar símaveskið sitt, velur aldursskírtenið sitt frá Ábyrgri verslun og staðfestir lágmarksaldur með rafrænum hætti.

3

Starfsmaður fær staðfestingu

Aldursvottunarkerfi eða starfsmaður fær staðfestingu um að lágmarksaldur sé uppfylltur og opnar aðgengi að vörukaupum eða þjónustu.

4

Nafnlaus skráning á færslu

Öll aldursstaðfesting er skráð með dulkóðun í kerfinu án persónuupplýsinga. Fullkomin friðhelgis- og persónuvernd.

Ábyrgar verslanir

Ábyrg verslun er nútímalegt aldursvottunarkerfi sem verndar bæði viðskiptavini og verslanir með öruggum hætti. Með því að sammælast um eina aldursvottunarlausn einföldum við innleiðingu fyrir fyrirtæki og viðskiptavinum að auðkenna aldur hratt og örugglega.

Hvernig virkar þetta?

Þú skráir fyrirtækið þitt og þú færð aðgang að vefgátt þar sem þú getur sett upp starfsmenn, staðsetningar og tæki sem geta aldursvottað viðskiptavini. Slík tæki geta verið snjallsímar, spjaldtölvur eða innbyggt í kassakerfið þitt.

Viðskiptavinir auðkenna sig

Viðskiptavinur getur sannreynt aldur með því að nota Ábyrg verslun skírteni úr símaveski, rafræn skilríki (eID) eða handvirka staðfestingu starfsmanns. Skírtenið styður snertilaus samskipti (NFC) og lestur á strikamerki (strikamerkjaskanna).

Hraðvirk og aðgengilegt

Fljótlegasta leið fyrir viðskiptavin að sannreyna lágmarksaldur er að nota Ábyrg verslun skírteni úr símaveski. Skírteinið er tengt við snertilaus samskipti símtækis (NFC) og veitir upplýsingar á öruggan hátt. Einnig er hægt að nota rafræn skilríki (eID) eða handvirka staðfestingu starfsmanns um að gild skilríki hafi sýnt fram á aldur. Með þessum sveigjanleika er bæði tryggt hraðvikni og aðgengi.

Persónuvernd

Verslun eða þjónusta sem framkvæmir aldursvottun fær aðeins upplýsingar um hvort viðskiptavinur uppfyllir kröfur um lágmarksaldur eða ekki. Aðrar persónuupplýsingar svo sem nafn og kennitala eru ekki aðgengilegar þeirri verslun eða þjónustu sem framkvæmir aldursvottunina

Fyrir hverja er Ábyrg verslun?

Lausnin hentar öllum sem þurfa að sanna eða staðfesta lágmarksaldur á einfaldan og öruggan hátt.

Almenningur

Allir þeir sem eru með aðgang að rafrænum skilríkjum geta sótt aldursvottunarskilríki og notað til þess að sanna lágmarksaldur án þess að afhenda persónuupplýsingar.

Verslanir

Verslanir sem selja vörur háðar aldurstakmörkun, hvort sem sú takmörkun sé skv. íslenskri löggjöf eða af eigin forsendum versla. Þessir vöruflokkar geta m.a. verið orkudrykkir, tóbak, níkótín eða áfengi.

Veitingastaðir

Dyraverðir og þjónar á börum, skemmtistöðum og matsölustöðum geta sannreynt lágmarksaldur gesta með snjallforriti Ábyrgar verslunnar sem fáanlegt er í bæði App Store (iOS) og Play Store (Android).

Viðburðir

Viðburðir sem hafa aldurstakmark geta með einföldu móti staðfest lágmarksaldur gesta með snjallforriti Ábyrgar verslunnar sem fáanlegt er í bæði App Store (iOS) og Play Store (Android).

Hvort ert þú?

Hvort sem þú ert einstaklingur sem vill fá stafrænt aldursvottorð eða fyrirtæki sem vill nota kerfið í verslunum þínum - við höfum lausnina fyrir þig

Einstaklingur

Fáðu stafrænt aldursskírteini í símann þinn og notaðu það í verslunum sem styðja Ábyrga verslun.

  • Auðkenndu þig með rafrænum skilríkjum (eID)
  • Fáðu aldursskírteini beint í Apple Wallet eða Google Wallet
  • Notaðu í verslunum eða öðrum þjónustustöðum

Fyrirtæki

Stjórnaðu með einföldum hætti aldursvottunum í öllum þínum verslunum með vottun á sölufærslu og taktu þátt í standa vörð um aldursvottun í landinu.

  • Stjórnaðu tækjum, verslunum og starfsmönnum
  • Sannvottun niður á sölufærslu
  • Fjölda tækja & lausna í boði til að sannvotta aldur

Viltu vita meira um fyrirtækjagáttina?