
Ætlar ríkið að stuðla að aukinni tóbaksneyslu á Íslandi?
Í grein eftir Bjarna Frey Guðmundsson, einn eiganda Duflands kemur fram að að undanförnu hafi sú hugmynd skotið upp í kollinum að ríkisstjórnin vilji tryggja einokun sína á tóbaki í sessi og gera tóbak að fýsilegri kosti en miklu skaðminni níkótínvörur.
Í greinninni segir: Ríkisstjórnin reynir nú að ýta undir samkeppnishæfni tóbaks með lagabreytingu. Það er að minnsta kosti erfitt að skilja nýtt frumvarp öðruvísi. Mögulega er það ekki ætlunin en verður mjög líklega niðurstaðan.
Íslenska ríkið er með einkarétt á innflutningi og heildsölu tóbaks og rekur jafnframt eigin vöru, Neftóbak. Slíkur hagsmunaárekstur, þar sem ríkið gegnir bæði hlutverki birgis og löggjafa, kallar á aukna aðgæslu og gagnsæi. Með lagasetningu á síðustu öld var samkeppni við Neftóbak útilokuð með banni við sölu annarra nef- og munntóbaksvara. Þetta fyrirkomulag hefur haldist óbreytt þrátt fyrir miklar breytingar á hegðun og vali neytenda síðustu ár.









