
Áskorun til stjórnvalda
Í grein sem birtist á visir.is eftir Bjarna Frey Guðmundsson, einn eigenda Duflands, kemur fram að bann við markaðssetningu á nikótínvörum til barna sé þegar í gildi. Allar umbúðir þurfi að fara í gegnum umsóknarferli og þarfnast samþykkis opinbers eftirlitsaðila áður en þær eru markaðssettar. Það sem vanti hins vegar upp á í dag er virkt, árangursdrifið og gagnsætt eftirlit sem tryggir að tilgangur laganna: að vernda börn og ungmenni, nái fram að ganga í reynd.
„Ég skora á heilbrigðisráðuneytið að grípa til aðgerða: styrkja eftirfylgni, skilgreina verkferla og tryggja að eftirlitsaðilar hafi nauðsynlegar heimildir, úrræði og ábyrgð til að framfylgja lögunum. Það er ekki ásættanlegt að vernd barna byggi á góðum fyrirætlunum en veikburða framkvæmd”.









