
Hættu nú alveg
Í fræðslukverinu Hættu nú alveg um reykleysismeðferð og skaðsemi reykinga, kemur þetta fram: Á Íslandi hefur náðst frábær árangur í að stemma stigu við reykingum og Íslendingar verið í fararbroddi í reykingavörnum. Íslenskir grunnskólabekkir eru næstum reyklausir en ennþá reykja tæplega 6% fullorðinna hérlendis daglega, sem þó er eitt lægsta reykingahlutfall í heiminum. Markmiðið er að ná þessu hlutfalli niður í 0% og gera Ísland þar með að fyrsta reyklausa landinu í heiminum. Til mikils er að vinna því fórnarkostnaður við reykingar er gríðarlegur, ekki aðeins fyrir þá sem reykja, heldur samfélagið í heild.









