the choice of nicotine between snus and cigarettes

Lummuleg á­form heil­brigðis­ráð­herra

„Sé markmið heilbrigðisráðherra að draga úr neyslu á nikótínvörum ætti hann að líta til þess árangurs sem náðst hefur í að draga úr tóbaksneyslu hér á landi. Sá árangur náðist einna helst með aukinni fræðslu, þar sem áhersla var lögð á að upplýsa einstaklinga um skaðleg áhrif tóbaks, en nikótínvörur og nikótínlyf eiga einnig stóran þátt í þeim árangri.“ 

Nú liggja fyrir áform frá heilbrigðisráðherra sem munu skerða verulega valfrelsi neytenda þegar kemur að nikótínvörum. Nái þau fram að ganga verða nikótín- og tóbaksvörur færðar undir eina heildarlöggjöf um varnir gegn tóbaks- og nikótínvörum. Samkvæmt áformunum mun sú heildarlöggjöf leiða til þess að takmarkanir verða settar á bragðefni sem talin eru höfða til barna auk þess sem netsala með nikótínvörur verður bönnuð. Áform ráðherra hefðu neikvæð áhrif á valfrelsi fjölda neytenda á sama tíma og óljóst er hvort þau nái því markmiði að takmarka neyslu.

Lesa meira