
Nikótín, lýðheilsa og æskan
Nikótínvörur hvort sem er í formi púða eða rafretta hafa verið á milli tannanna á fólki undanfarin misseri enda hefur notkunin aukist jafnt og þétt einkum á meðal ungs fólks. Þegar kemur að lýðheilsu er mikilvægt að halda tveimur staðreyndum til haga: Í fyrsta lagi er nikótín mjög ávanabindandi efni. Í öðru lagi sýna rannsóknir að nikótín eitt og sér veldur ekki krabbameini, lungnasjúkdómum eða hjartasjúkdómum. Eiturefnin í brennandi tóbaki svo sem tjara og arsenik eru krabbameinsvaldandi. Ákveðin fáfræði felst í því að líta svo á að þetta sé allt sama tóbakið. Það er ekki að ástæðulausu að skýr aðgreining er gerð á niðurstöðum í gögnum úr lýðheilsuvísum Landlæknis þegar börn og ungmenni eru spurð út í notkun sína, annars vegar tóbaksreikingar og hins vegar nikótínpúða- og rafrettunotkun.
Hvað segja tölurnar um notkun ungs fólks?
Þegar rýnt er í tölur frá Landlæknisembættinu um nikótínpúðanotkun meðal framhaldsskólanema og barna í 10. bekk, má sjá ákveðna þróun. Árið 2021 sögðust 22,5% framhaldsskólanema hafa notað nikótínpúða einu sinni eða oftar í mánuði. Árið 2022 var talan 22,8% og árið 2025 var hún komin upp í 24,9%. Gögnin eru ekki greinanleg á aldur þ.e. þau sem eru 16 og 17 ára og þau sem hafa náð 18 ára aldri. Nemendur í 10. bekk voru spurðir með öðru orðalagi – hvort þeir hefðu prófað nikótínpúða. Árið 2023 sögðust 14,5% hafa gert það, en árið 2024 hafði sú tala hækkað í 16,3%. Þessi aukning hjá ungmennum í 10. bekk er áhyggjuefni. Það er því sérstaklega áhugavert að Landlæknisembættið hafi hætt að spyrja þennan aldurshóp og ekki eru til gögn fyrir árið 2025. Mælingin er ekki hvað síst mikilvæg hjá þeim hópi sem er undir 18 ára aldri og á alls ekki að hafa aðgang að nikótínvörum.Ábyrg verslun: Hagsmunir söluaðila og lýðheilsa barna fara saman
Samtök söluaðila hafa nú með átakinu Ábyrg verslun lagt áherslu á að nikótínvörur séu eingöngu ætlaðar fullorðnum og eigi aldrei að vera seldar til þeirra sem ekki hafa náð 18 ára aldri. Söluaðilar sem leggja metnað í ábyrga verslun vita að hagsmunir þeirra felast í fyrirsjáanlegu og skýru rekstrarumhverfi. Það felur í sér strangt aldurseftirlit sem þýðir að tryggt sé að að enginn undir 18 ára geti keypt vöruna. Vörur þurfa einnig að uppfylla gæðastaðla og vera í löglegum pakkningum. Þá þarf rekstrarumhverfið að einkennast af góðu samstarfi við eftirlitsaðila. Ábyrg verslun kallar eftir því að yfirvöld sinni raunverulegu eftirliti með þeim verslunum sem ekki uppfylla ströng skilyrði yfirvalda við sölu á nikótín og tóbaksvörum.Eftirlit eða svartur markaður?
Sú staðreynd að yfir 16% barna í 10. bekk hafi prófað nikótínpúða er vísbending um að eftirlit með söluaðilum og þá sérstaklega þeim sem starfa utan hins hefðbundna verslunarkerfis sé ábótavant. Hér þurfum við að gæta okkar. Ef reglugerðir eru hertar gagnvart löglegum verslunum, eins og nýtt frumvarp heilbrigðisráðherra til laga gerir ráð fyrir, t.d. með því að takmarka framboð eða bragðtegundir fyrir fullorðna, er hætta á að markaður með meira framboð og bragðúrval færist yfir á samfélagsmiðla. Á svörtum markaði er ekkert aldurspróf, engin Ábyrg verslun og enginn sem spyr um skilríki. Þar fær frjálst aðgengi barna að nikótíni að viðgangast óáreitt.









