
Nikótín og tóbak sitthvor hluturinn
Einkennilegt er að fella nikótínvörur, sem ekki innihalda tóbak, undir sömu löggjöf og hefðbundnar tóbaksvörur. Nikótínvörur eru skaðminni en tóbaksvörur og fjöldi fólks hefur nýtt sér þær til að hætta að reykja eða neyta annara tegunda tóbaks.
Löggjöfin ætti að endurspegla að nikótínvörur eru skaðminni valkostur, en ekki leggja þær að jöfnu við tóbaksvörur. Þannig er tryggt að til staðar sé hvati fyrir einstaklinga að kjósa skaðminni valkost en hefðbundna tóbaksvöru. Núverandi áform taka aftur móti ekki mið af þessum sjónarmiðum.









