
Skýrsla heilbrigðisráðherra um niðurgreiðslu nikótínlyfja, samkvæmt beiðni.
Með beiðni á þskj. 412 frá Jódísi Skúladóttur og fleiri alþingismönnum var þess óskað að heilbrigðisráðherra flytti Alþingi skýrslu um niðurgreiðslu nikótínlyfja. Í skýrslubeiðni er þess óskað að fjallað verði m.a. um áætlaðan fjölda fólks sem reykir, notar tóbak eða aðra vöru sem inniheldur nikótín, samsetningu hóps reykingamanna eftir helstu félags- og efnahagsbreytum, samfélagslegan kostnað reykinga, samanburð á árangri þess að hætta að nota nikótín í formi tóbaks eða annarrar vöru sem inniheldur efnið með og án lyfjameðferðar og ábata þess að greiða niður nikótínlyf. Við gerð skýrslunnar var meðal annars kallað eftir upplýsingum frá embætti landlæknis og eru þær tölulegu upplýsingar sem hér koma frá fyrstu tíu mánuðum ársins 2023.









