Nicotine pads snus, cigarette replacement, together with an electronic cigarette

Tóbakslausar nikótínvörur – Tíma­bært að horfast í augu við stað­reyndir

Undanfarin misseri hefur því verið haldið fram af starfsfólki heilbrigðisstofnana hér á landi að notkun tóbakslauss nikótíns ein og sér leiði til alvarlegra langvinnra sjúkdóma. Þessar fullyrðingar eru ekki studdar af vísindalegum staðreyndum. Rannsóknir sýna að nikótín, þótt vissulega ávanabindandi sé, valdi ekki krabbameini, lungnasjúkdómum, hjartasjúkdómum eða heilablóðfalli. Þau hættulegu efni sem sígarettur innihalda, svo sem tjara, arsenik og önnur eiturefni í brennandi tóbaki, eru ábyrg fyrir þessum sjúkdómum, þegar þeir koma upp, ekki nikótínið eitt og sér.

Nikótín sem verkfæri til skaðaminnkunar

Í áratugi hefur tóbakslaust nikótín verið notað með góðum árangri í formi tyggjós eða plástra til að aðstoða fólk við að hætta að nota tóbak. Þetta hefur skilað mælanlega betri heilsu fólks og dregið úr tóbakstengdum sjúkdómum. Dæmi má taka frá Svíþjóð þar sem nýgengi krabbameins meðal karla hefur dregist saman á sama tíma og reykingar hafa minnkað verulega.

Alþjóðleg heilbrigðisvísindasamfélög, heilbrigðisstofnanir og krabbameinssamtök eru samhljóða í þeirri skoðun að verulegur munur sé bæði á stigi og eðli áhættunnar við að reykja sígarettur og nota tóbakslausar nikótínvörur svo sem rafrettur og nikótínpúða. Rannsóknir benda jafnframt til þess að þessar vörur séu svipað skaðlitlar og tóbakslaus nikótínlyf, sem þegar eru samþykkt sem heilbrigðisvörur.

Hér má lesa alla greinina