Hvað þarf verslun að gera til þess að fá viðurkenninguna Ábyrg verslun?

  • Aldursvottunarkerfi er í þróun hjá Ábyrgri verslun. Verslanir sem selja nikótínvörur geta sótt um að fá kerfið í sína verslun og hljóta með því vottun Ábyrgrar verslunar. Þegar kerfið er tilbúið verður það innleitt í verslanirnar, sem kemur í veg fyrir sölu á tóbaks- og nikótínvörum til barna og unglinga.
  • Verslunin þarf að hafa tilsett smásöluleyfi fyrir tóbaks- og nikótínvörum.
  • Tóbaks- og nikótínvörur skulu ekki vera sýnilegar viðskiptavinum, nema verslunin sé skilgreind sem sérverslun.
  • Verslunin selur einungis vörur sem hafa verið samþykktar af eftirlitsstofnun ríkisins og eru framleiddar fyrir íslenskan markað.

Aldursvottunarkerfi

Aldursvottunarkerfi er stafrænt kerfi sem staðfestir að viðskiptavinur hafi náð tilsettum aldri við kaup á tóbaks- og nikótínvörum. Kerfið hindrar afgreiðslu á tóbaks- og nikótínvörum ef aldur viðskiptavinar hefur ekki verið sannprófaður. Mögulegt er að sannprófa aldur með rafrænum skilríkjum eða með því að skanna inn gild persónuskilríki. Kerfið er í þróun.

Smásöluleyfi

Verslun sem selur tóbaks- eða nikótínvörur skal hafa í gildi leyfi til sölu á vörunum í smásölu eða í sérverslun. Tóbakssöluleyfi eru gefin út af heilbrigðisnefndum sveitarfélaganna. Nikótínsöluleyfi er gefið út af HMS. Leyfi gilda í fjögur ár í senn. 

Sýnileiki

Samkvæmt lögum skal tóbaks- og nikótínvörum vera komið þannig fyrir á smásölustöðum að vörurnar séu ekki sýnilegar viðskiptavinum. Sérverslunum er heimilt að hafa vörur sýnilegar þegar inn í verslunina er komið. Almennar verslanir þurfa því að geyma vörurnar úr augsýn viðskiptavina.

Samþykktar vörur

Ábyrgar verslanir hafa einungis til sölu þær tóbaks- og nikótínvörur sem hafa verið samþykktar af eftirlitsaðila ríkisins og eru framleiddar fyrir íslenskan markað. Sala á endurmerktum vörum sem upprunalega eru ætlaðar erlendum mörkuðum fellur ekki undir Ábyrga verslun. Tóbaks- og nikótínlög eru mismunandi milli landa. Á Íslandi gilda ströng lög um innihaldsefni, nikótínstyrk og upplýsingakröfur á umbúðum tóbaks- og nikótínvara. Með þessu er öryggi og gæði varanna tryggt og að aðeins séu seldar vörur sem samræmast íslenskri löggjöf.

Gerðu verslunina að Ábyrgri verslun

Með vottun sýnir þú viðskiptavinum að þú leggur áherslu á gagnsæi, traust og ábyrga starfshætti.
Sækja um vottun