Rannsóknir sýna

að nikótín, þótt vissulega ávanabindandi sé, valdi ekki krabbameini, lungnasjúkdómum, hjartasjúkdómum eða heilablóðfalli. Þau hættulegu efni sem sígarettur innihalda, svo sem tjara, arsenik og önnur eiturefni í brennandi tóbaki, eru ábyrg fyrir þessum sjúkdómum, þegar þeir koma upp. Ekki nikótínið eitt og sér.

  • Ekkert okkar vill að börn og ungmenni noti nikótín eða tóbak.

  • 30.000 manns hættu daglegri tóbaksneyslu á Íslandi á tímabilinu 2015-2025.

  • Bragð skiptir máli fyrir fullorðna sem hafa hætt eða vilja losna undan tóbaksnotkun.

  • Sala á sígarettum dróst saman um 45% á tímabilinu 2015-2025.

  • Strangt eftirlit, rafræn aldursprófun og forvarnir eru besta leiðin.

  • Sala á neftóbaki dróst saman um
80% á Íslandi á tímabilinu 2015-2025.

  • Skaðaminnkun er samþætt stefna í mörgum Evrópulöndum.

  • Að setja tóbak og tóbakslausar nikótínvörur í sama flokk mun grafa undan jákvæðri þróun.

  • Reynslan erlendis sýnir að of víðtækar takmarkanir á sölu á tóbakslausum nikótínvörum ýti undir svartamarkað og ólöglegar vörur.

  • Stuðningur við fólk til að hætta að reykja
með skaðminni valkostum dregur úr
kostnaði í heilbrigðiskerfinu.